Dúnn
66°Norður hefur um árabil aðeins notað dún í vörur sínar frá þýskum samstarfsaðila sem er með svonefndar Responsible Down Standards, Downpass, The OEKO-TEX® Standard 100 og VET vottanir:
Responsible Down Standard tryggir að dúnn og fiður komi aðeins frá öndum og gæsum sem hafa verið meðhöndlaðar af gætni. Þar er átt við að gera þeim kleift að lifa heilbrigðu lífi, fylgja meðfæddri hegðun og þjást ekki vegna sársauka eða álags. Staðallinn fylgir einnig rekjanleikakröfum, frá býli til vöru, þannig að tryggt sé að dúnn og fiður merktur staðlinum (RDS) sé það örugglega.
Downpass merking er trygging fyrir hágæðum. Hún ábyrgist jafnframt að dúnn og fiður í fyllingum séu tínd á ábyrgan hátt og hluti af rekjanlegri keðju sem er stýrt á ábyrgan hátt.
The OEKO-TEX® Standard 100 er sjálfstætt prófunar- og vottunarkerfi fyrir hrátextíl, afurðir á bæði millistigi og endastigi, á öllum stigum framleiðslu. Dæmi um vörur hæfar til vottunar væru: hrá- og litað/tilbúið garn, hrá- og litað/tilbúið efni og prjón, tilbúnar vörur (hverskyns fatnaður, húsbúnaður, sængurfatnaður, vefnaðarvara, textílleikföng, o.f.l.)
VET vottunin tryggir að birgjaferlið er undir ströngu eftirliti dýralækna og er samkvæmt reglugerð (ESB) nr.1069/2009 um tækniverksmiðjur nr. DE 06436000514, til vinnslu á dúni og fjöðrum samkvæmt tilkynningu frá 01.08.2008 um viðurkennt eftirlit.
af stílum sem innihéldu dún í vetrarlínu 2022 voru framleiddir með endurunnum dún.
Endurunninn dúnn
Við höfum keypt vottaðan dún síðan árið 2011. Af þeim stílum sem innihéldu dún í vetrarlínu 2022 voru 43% þeirra framleiddir með endurunnum dún, sem uppfylllir alþjóðlega endurvinnslustaðlinn (Global Recycling Standard, GRS).