Dyngja
Dyngja ullarvörulínan er framleidd á Íslandi og er gerð úr ullarblöndu sem inniheldur íslenska ull, mohair og nylon, sem notað er til þess að styrkja bandið. Vörulínan samanstendur af peysu, stuttri peysu, húfu, lambhúshettu og trefli.
Mynstrið á flíkunum er búið til úr jöklamynstri sem einnig má finna á Dyngju dúnúlpunum og dúnvestunum. Mystrið var unnið úr ljósmyndum af íslenskum jöklum teknar af Benjamin Hardman ljósmyndara.
Íslenska ullin í Dyngju vörunum kemur frá sauðfjárbændum. Þaðan er hún send í þvottastöð Ístex á Blöndósi að lokum í Ístex í Mosfellsbæ. Bandið fer svo spunnið til Varma í Reykjavík þar sem það er prjónað úr því, það þvegið, sniðið og að lokum er flíkin saumuð saman.
- Framleiðsluábyrgð Lestu ábyrgðarskilmálana okkar
- Stíll
Húfur
Frí heimsending á öllum pöntunum yfir 20.000 ISK
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má falla frá kaupum án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga frá afhendingu vörunnar fyrir fulla endurgreiðslu.
Upplýsingar um skilareglur hér.