Endurskin | Sérstök útgáfa
Í skammdeginu á Íslandi er birtan af skornum skammti, að muna eftir endurskini er ekki aðeins mikilvægt heldur getur það verið lífsnauðsynlegt. Þessi lína vekur svo sannarlega athygli á því.
Við völdum nokkur stykki af okkar uppáhalds hönnunum og tókum efni sem við áttum til nú þegar í verksmiðjunni okkar í Lettlandi og úr varð þessi lína, sem lýsir ekki aðeins í myrkri, heldur er einnig stílhrein og hefur mikið notagildi.
Þessi létti 25L bakpoki er gerður úr vatnsfráhrindandi endurskinsefni og er fullkominn fyrir hversdagslega notkun. Bakpokinn er vatteraður að innan sem ver farangurinn fyrir hnjaski. Hönnunin sækir innblástur í Vatnajökul bakpokann okkar.
- Framleiðsluábyrgð Lestu ábyrgðarskilmálana okkar
- Hlutur - Aðal
69% PA, 1% PES, 6% REFLEX, 24% PU
- Stíll
Töskur
Frí heimsending á öllum pöntunum yfir 20.000 ISK
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má falla frá kaupum án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga frá afhendingu vörunnar fyrir fulla endurgreiðslu.
Upplýsingar um skilareglur hér.