Jökull
Jökull parka er gerð fyrir mikinn kulda. Ytra lag úlpunnar er úr hágæða CORDURA® efni sem er einstaklega sterkt og endingargott með vatnsheldni upp að 9.000mm. Saumarnir eru límdir til þess að auka vatnsheldnina. Á hettunni er dúnkragi, einangraður með gæsadún. Kragi úlpunnar veitir andlitinu skjól og hlýju frá veðri og vindum og kemur einnig í veg fyrir að snjór og bleyta komist inn um hálskraga úlpunnar.
Á úlpunni eru tveir renndir brjóstvasar, tveir renndir vasar að framanverðu og renndur vasi að innan. Snúrugöng með teygju í mitti og faldi svo hægt er að aðlaga snið. Endurskin á baki og ermum. Auðvelt er að klæðast grunn- og miðlagi undir úlpunni.
- Framleiðsluábyrgð Lestu ábyrgðarskilmálana okkar
- Ytra lag - Aðal
100% polyamide - CORDURA®
- Ytra lag - Fóður
100% polyester
- Innra lag - Einangrun
650 fill power: 70% grár gæsadúnn, 30% fjaðrir
- Skel
CORDURA®
- Hentar fyrir
Sleðafjör
Dagsdaglega notkun
- Eiginleikar
Harðgerð skel
Vindvörn
Vatnsþolin
- Stíll
Dúnúlpa
Frí heimsending á öllum pöntunum yfir 20.000 ISK
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má falla frá kaupum án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga frá afhendingu vörunnar fyrir fulla endurgreiðslu.
Upplýsingar um skilareglur hér.