Krafla
Krafla er hlý og góð dúnkápa í hefðbundnu sniði. Hún er framleidd úr 100% endurunnu efni sem litað er með náttúrulegu litarefni. Kápan er mjög hlý en þó hvorki fyrirferðarmikil né þung þannig að það er auðvelt að athafna sig í henni og vera á ferðinni.
Kápan er einangruð með endurunnum dún sem er 700 fill power. Krafla er úr vatnsfráhrindandi og vindheldu efni. Hægt er að taka hettuna af. Tveir renndir vasar að framan og einn renndur vasi að innan. Hægt er að þrengja kápuna að neðan með smellum. Stroff á ermi til að auka einangrun.
Krafla er frekar stór í stærðum.
- Framleiðsluábyrgð Lestu ábyrgðarskilmálana okkar
- Ytra lag - Aðal
100% endurunnið nylon
- Innra lag - Fóður
100% Endurunnið Polyester
- Innra lag - Einangrun
700 fill power: 80% blanda af endurunnum gæsa- og andadún, 20% fjaðrir | RESPONSIBLE DOWN STANDARD
- Stíll
Dúnúlpa
Frí heimsending á öllum pöntunum yfir 20.000 ISK
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má falla frá kaupum án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga frá afhendingu vörunnar fyrir fulla endurgreiðslu.
Upplýsingar um skilareglur hér.