1/7

La Sportiva TX5 GTX

Product code: O98054-880-42
Gönguskór
33.900 ISK
Litur
Clay/Saffron
Stærð 42

TX5 skórinn er sérstaklega góður fyrir gróft landslag, mold og grjót. Þeir eru með gúmmíkanti allan hringinn sem ver skóna fyrir grjóti. Skórnir liggja vel á fæti og Vibram sólinn gefur einstaklega gott grip og lögunin á honum gerir gönguna þægilegri. Skórnir eru úr leðri og með Gore-Tex filmu sem er vatnsheld og andar. Þessir skór henta bæði í styttri og lengri fjallgöngur í íslenskum aðstæðum. Við mælum með að taka stærð ofar en venjulega.

Skórnir eru litlir í stærðum og mælum við því með að taka stærðinni fyrir ofan þá stærð sem vanalega er tekin.

Umhirða á skóm frá La Sportiva:

Við mælum með að þrífa alla drullu og skít af skónum þegar þess þarf undir vatni og/eða með rökum klút. Ef skórinn blotnar í gegn ætti innleggið á skónum að vera fjarlægt á meðan skórinn þornar á þurrum og köldum stað. Ekki er mælt með að nota dagblað eða annars konar fyllingu í skóna þegar þeir eru ekki í notkun þar sem það getur hægt á þurrkunarferli skósins. Þrífa skal skóna með vatni eða wax-based vörum (ekki olíu-based vörum). Ekki skal þurrka skónna í sólinni eða á heitum stað.