1/6

La Sportiva Trango TRK Leather GTX - Konur

Product code: O97928-430-39
Gönguskór
39.000 ISK
Litur
Opal / Pacific Blue
Stærð 39

Trango TRK Leather GTX eru alhliða gönguskór sem henta í stuttar sem langar göngur og henta vel utanvega og veita góðan stuðning. Þeir eru með Idro-Perwanger vatnsheldu leðri, anda vel og eru með vatnsheldri Gore-Tex filmu. Þeir eru léttir, liprir og mjúkir ásamt því að liggja vel á fæti. Vibram sólinn gefur einstaklega gott grip og lögunin á honum gerir gönguna þægilegri.Við mælum með að taka stærð ofar en venjulega.

Skórnir eru litlir í stærðum og mælum við því með að taka stærðinni fyrir ofan þá stærð sem vanalega er tekin.

Umhirða á skóm frá La Sportiva:

Við mælum með að þrífa alla drullu og skít af skónum þegar þess þarf undir vatni og/eða með rökum klút. Ef skórinn blotnar í gegn ætti innleggið á skónum að vera fjarlægt á meðan skórinn þornar á þurrum og köldum stað. Ekki er mælt með að nota dagblað eða annars konar fyllingu í skóna þegar þeir eru ekki í notkun þar sem það getur hægt á þurrkunarferli skósins. Þrífa skal skóna með vatni eða wax-based vörum (ekki olíu-based vörum). Ekki skal þurrka skónna í sólinni eða á heitum stað.