Elín Metta
Með mótvindinn í bakið
Knattspyrna spilaði snemma stórt hlutverk í lífi Elínar Mettu Jensen.
Knattspyrna spilaði snemma stórt hlutverk í lífi Elínar Mettu Jensen. Elín hafði eytt mörgum stundum með pabba sínum niðri á velli áður en hún byrjaði að æfa fótbolta hjá Val, aðeins fimm ára gömul.
Þrátt fyrir að fyrsti leikur Elínar hafi að mestu farið í að æfa handahlaupatilburði á hliðarlínunni, þá komu knattspyrnuhæfileikarnir fljótlega í ljós og í dag er hún ein fremsta íþróttakona Íslands. Hún hefur spilað lykilhlutverk í knattspyrnuliði Vals og íslenska landsliðinu síðustu ár, en til hliðar við spilamennskuna stundar Elín nám í læknisfræði við Háskóla Íslands.
Það er ekki algengt að læknisfræðinemar spili knattspyrnu í heimsklassa samhliða náminu. Að halda báðum boltum á lofti getur reynst krefjandi verkefni, sér í lagi þar sem lesefnið í læknisfræðinni er þekkt fyrir að vera einstaklega víðtækt og tímafrekt í yfirferð.
Elín hefur þó með aðdáunarverðum hætti sinnt báðum verkefnum af mikilli elju.
„Maður heldur alltaf að það séu einhverjir töfrar á bakvið fyrirmyndirnar. Svo kemst maður að því að þú ert bara að helga þig einhverju og ert að leggja ótrúlega mikla vinnu í það"
Þú kemst ekki neitt ef þú ert ekki með drauma eða markmið. Þú verður að stefna eitthvert.
Elín Metta hefur ekki alltaf spilað með vindinn í bakið. Í lok ársins 2016 lést faðir hennar eftir erfiða baráttu við krabbamein og við tók tími sem mótaði að miklu leyti hvernig hún forgangsraðar hlutunum í dag. Hún segist þó sátt í dag við hvernig hún sneri ástandinu sér í hag.
„Þó svo þetta hafi verið ótrúlega erfiður tími í mínu lífi, þá einhvern veginn var þetta ljósið sem að leiddi mig svolítið áfram, eitthvað markmið sem ég hafði.”
Að stunda knattspyrnu utandyra á Íslandi getur verið skrautlegt, en vot- og hvassviðri, óútreiknanlegar snjókomur og bítandi frost er eitthvað sem allar íslenskar knattspyrnukonur og knattspyrnumenn kannast vel við.
Kuldalegt veðurfar veldur því einnig að sjálfan þjóðarleikvanginn í Laugardal þarf að hita upp með þar til gerðum búnaði til að undirbúa hann fyrir leiki að vori til.
„Ég man að einhvern tímann þurftum við að moka snjóinn af vellinum og þetta var fyrsta maí! Þjálfarinn hrópaði ”Út! Út að moka! Veðrið hérna er náttúrulega bara eitthvað fáránlegt.“
Það má þó gera sér í hugarlund að slíkar aðstæður spili mikilvægt hlutverk í því að styrkja þol og úthald íslensks íþróttafólks fyrir krefjandi aðstæðum. Elín talar sjálf um hvernig ólíkt veðurfar veturs og sumars hefur áhrif á hana.
„Sumarið er alveg yndislegt og bjart nánast allan sólarhringinn og svo veturnir svona dimmir, kaldir, þungir, erfiðir. Þetta eru svo miklar sveiflur og ég held að það hafi klárlega áhrif á bæði hvernig við hugsum og bara almennt viðhorfið til lífsins.“