Samstarfsaðilar og vottanir
Við erum stöðugt í leit af sjálfbærum hráefnum sem tryggja sömu eða enn betri gæði og endingu á vörunum okkar. 66°Norður starfar með ábyrgum og framsæknum hráefnaframleiðendum sem hafa sömu gildi að leiðarljósi.
Samstarfsaðilar
Við skuldbindum okkur til að vinna einungis með efni frá ábyrgum framleiðendum og birgjum sem uppfylla hæstu gæðakröfur.
Gore er einstaklega skapandi og framsækið fyrirtæki sem einbeitir sér að rannsóknum og vöruhönnun. Gore hefur þjónustað ýmsa aðila á alþjóðamarkaði í yfir 50 ár og veitt viðskiptavinum sínum hágæðavöru sem ætlað er að auka lífsgæði. Samstarfsaðilar Gore eru stoltir af því að vera hluti af framlagi fyrirtækisins til samfélagsins.
Polartec, LLC er leiðandi í framleiðslu á nýjungum í textíllausnum. Verkfræðingar Polartec fundu upp flísefnið árið 1981 og hafa síðan þá verið leiðandi í tækniþróun á efnum. Í dag er Polartec einna fremst í heiminum þegar kemur að háþróuðum efnanýjungum. Polartec framleiðir allt frá háþróuðum léttum öndunarefnum, að einangrun og veðurheldum textíl, sem mörg af helstu útivistarfatamerkjum heims nota.
Vottanir
Við vinnum einungis með virtum efna- og aukahlutaframleiðendum. Öll hráefni í vörunum okkar eru vottuð og rekjanleg eftir fremstu gæðastöðlum.
Vottunina hljóta þau fyrirtæki sem hafa uppfyllt hæstu kröfur um samfélagslega og umhverfislega frammistöðu í starfsemi sinni á ábyrgan og gagnsæjan hátt.
The OEKO-TEX® Standard 100 er alþjóðlega samræmt vottunarkerfi fyrir hráan textíl, hálfunnar og fullkláraðar textílvörur.
Alþjóðlega bluesign® vottunin er veitt til þeirra fyrirtækja sem framleiða sjálfbæra vöru, útiloka skaðvænleg efni í framleiðslu og tryggja öryggi neytanda.
Einungis þær vefnaðarvörur sem innihalda að lágmarki 70% lífrænna þráða geta fengið GOTS vottunina.
GRS vottunin er ætluð fyrirtækjum sem leitast eftir því að staðfesta magn endurunnins innihalds í vörum þeirra.
Responsible Down Standard vottunin tryggir að dúnn og fjaðrir komi frá öndum og gæsum sem ræktaðar hafa verið á mannúðlegan hátt.
Allur ekta feldur sem 66°Norður notar í vörum sínum er frá finnska fyrirtækinu Saga Furs.